28 October 2010
Stór og gerðarleg meri eftir aldri með fallegan höfuðburð og góða fótlyftu.
Hryssan er rauð, tvístjörnótt og brokkar bæði og töltir undir sjálfri sér. Hún hefur mikið skap, er kraftmikil og virðist búa yfir miklu rými á gangi. Reikistjarna getur hentað vel í ræktun eða sem reiðhross. Hryssan er í frumtamningu og hægt að skoða hana í Hafnarfirði.
Faðir: Kraki frá Þóroddsstöðum
FF: Sjóli frá Dalbæ
FM: Hörn frá Þóroddsstöðum
Móðir: Röskva frá Geitaskarði
MF: Hólmar frá Geitaskarði
MFF: Hrannar frá Kýrholti
MM: Mömmublesa frá Geitaskarði
Verð: 400.000











