Geitaskarð
Prentvæn útgáfa

gisting-mynd

                                    gisting-kort

gisting-class

 

Geitaskarð

Geitaskarð er í Langadal, um 10 km norðan við Blönduós og stendur við þjóðveg 1. Á Geitaskarði eru ábúendurnir Ágúst Sigurðsson og Ásgerður Pálsdóttir sem eru í samstarfi við Ferðaþjónustu Bænda.

Boðið er uppá gistingu í bænum sjálfum, og er gistiplássið á 3 hæð hússins. Húsið sjálft var byggt 1910, og er eitt af elstu steyptu húsunum hér á landi.  Það má segja að húsið sé heimili að heiman, frekar en gistiheimili. 


Í nágreninu eru nokkrar frábærar gönguleiðir, s.s í gegnum Skarðsskarð og yfir í Laxárdal, sem er sumarparadís fyrir menn og skepnur.

Ábúendur eru í hrossarækt, og á undanförnum árum hafa gestir okkar getað tekið þátt í hrossagöngum, sem farið er í að öllu jöfnu þriðju helgina í september ár hvert.

 Hægt er að bóka gistingu hér .

hestar i gongum Í göngum