Geitaskarð

Baldur_fra_SkuffslaekÍ ár sinnti Baldur frá Skúfslæk merum á Geitaskarði, en sá er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og er sammæðra Héðni frá Feti.  Við bindum vonir við að hann skili góðum afkvæmum á næsta ári. Þá er ekki síður spenningur fyrir afkvæmum þeirra hesta sem ekið var með merar til á þessu ári.

Auk Baldurs notuðum við í sumar Kapal frá Kommu, Hring frá Fellskoti, Blæ frá Torfunesi og fjóra gráa stóðhesta.

 

 

 

 Það eru þeir Tenór frá Túnsbergi, Huginn frá Haga, Hrímnir frá Ósi og Þjóðólfur frá Þjóðólfshaga.

 

Huginn_fra_HagaHringur_fra_FellskotiHrímnir frá ÓsiKapall_fra_Kommu2

 

 

 

 

 

 

 

Efsta myndin: Baldur frá Skúffslæk kynnir sig fyrir stóðhryssum.

Myndaröðin:
Mynd 1: Huginn frá Haga, gæðingafaðir og gæðingur sjálfur.
Mynd 2: Hringur frá Fellskoti, fékk 8,19 fyrir byggingu 3ja vetra.
Mynd 3: Hrímnir frá Ósi, gríðar spennandi og jafn klárhestur - 9,5 fyrir tölt og brokk 5 vetra.
Mynd 4: Kapall frá Kommu, eigum tvo hluti í þessum vel kynjaða og sérstakt skjótta hesti. 

P.s. heyrst hefur að Steingrímur Sigurðsson, Hinrik Bragason, og Grétar og Hjörtur Sigvaldasynir hafi fest kaup á Baldri Skúffslæk og ætli sér stóra hluti með hann á næstu árum. Það verður gaman að fylgjast með Baldri og mögulega verða einhverjar dómafréttir af honum á næsta ári.

 

sveipurdsc00847Tryppi gerir sig heimakomið hjá Sigurði Erni Ágústssyni