16. september 2010
Framundan hjá okkur er að fara upp á Laxárdal, í félagi við sveitunga og gesti og smala afréttinn og rétta hross í Skrapatungurétt. Það er alltaf mikil stemning og mikið fjör. Á okkar vegum taka um 60 manns þátt í smölun og réttarstörfum um þetta árið. Er þetta ein skemmtilegasta helgi ársins fyrir heimamenn og fátt sem jafnast á að vera vel ríðandi og ríða út Laxárdal með hrossastóð á undan sér í fylgd skemmtilegs fólks. Við hlökkum til.
Það er nánast útilokað að lýsa svo vel sé þeirri stemningu sem myndast en meðfylgjandi myndir geta kannski hjálpað eitthvað.







