Geitaskarð
gangskr efsta 5 vetra hryssan Gangskör er alhliða gæðingur með frábært geðslag. Hún fór beint í 1. verðlaun fimm vetra gömul og var hæst dæmda fimm vetra hryssan á okkar svæði það árið. Að Gangskör standa úrvals kynbótagripir, langt aftur í báðar ættir. Má nefna heiðursverðlaunahestana Gust frá Hóli, Gáska frá Höfsstöðum, Kolfinn frá Kjarnholtum, Hrafn frá Holtsmúla og Sörla frá Sauðárkróki.

Faðir: Gustur frá Hóli (heiðursverðlaun)
FF: Gáski frá Hofsstöðum (heiðursverðlaun)
FM: Abba frá Gili (hæfil.: 8,03, aðaleink.: 8,03)
Móðir: Bylgja frá Svignaskarði (hæfil.: 8,36, aðaleink.: 8,09)
MF: Kolbeinn frá Vallanesi (hæfil.: 8,13, aðaleink.: 7,92)
MFF: Kolfinnur frá Kjarnholtum I (heiðursverðlaun)
MM: Kjöng frá Svignaskarði (1.v. fyrir afkvæmi)
MMF: Sörli frá Sauðárkróki (heiðursverðlaun) 

Eini fullnaðar kynbótadómur Gangskarar er frá árinu 2009. Við teljum hana eiga inni fyrir flestar gangtegundir, ekki síst skeið.

gangskor-domur-isl

tvimennt2Tvímennt yfir Laxá í Refasveit, við Skrapatungurétt