Geitaskarð

Skrapatunga- Hross svo langt sem augað eygir....Framundan hjá okkur er að fara upp á Laxárdal, í félagi við sveitunga og gesti og smala afréttinn og rétta hross í Skrapatungurétt. Það er alltaf mikil stemning og mikið fjör. Á okkar vegum taka um 60 manns þátt í smölun og réttarstörfum um þetta árið. Er þetta ein skemmtilegasta helgi ársins fyrir heimamenn og fátt sem jafnast á að vera vel ríðandi og ríða út Laxárdal með hrossastóð á undan sér í fylgd skemmtilegs fólks. Við hlökkum til. 

 

 

 

Nánar...

Baldur_fra_SkuffslaekÍ ár sinnti Baldur frá Skúfslæk merum á Geitaskarði, en sá er undan Kjarna frá Þjóðólfshaga og er sammæðra Héðni frá Feti.  Við bindum vonir við að hann skili góðum afkvæmum á næsta ári. Þá er ekki síður spenningur fyrir afkvæmum þeirra hesta sem ekið var með merar til á þessu ári.

Auk Baldurs notuðum við í sumar Kapal frá Kommu, Hring frá Fellskoti, Blæ frá Torfunesi og fjóra gráa stóðhesta.

 

 

 

Nánar...

Gæðingurinn Otri hefur verið á vist hjá Daníel Inga Smárasyni, sem á hálfbróður hans. Eru þeir félagar að undirbúa sig fyrir skeiðkeppnir og fimmgangskeppnir á næsta ári. Otri hefur aðeins farið í brautina í ár, meðal annars á Íslandsmótinu í Hafnarfirði. Þar tóku þeir félagar þátt í Gæðingaskeiðinu og fyrri sprettur Otra var mjög góður, en sá síðari heppnaðist ekki nægilega vel. En hraði og útgeislun hestsins gefur góð fyrirheit um það sem koma skal. Árið 2011 verður árið hans Otra, og auðvitað Daníels Smára líka

Otri og Daníel Ingi SmárasonOtri og Daníel Ingi Smárason

 

 

 

 

 

 

 

Daníel Ingi Smárason og Otri vekja athygli hvar sem þeir koma.

Alla ræktendur hlakkar til vorsins, að sjá folöldin nýköstuð og kynnast þeim fyrstu dagana. Þetta árið fengum við 12 folöld, undan Aron frá Strandarhöfði, Þóroddi frá Þóroddstöðum, Fróða frá Staðartungu og auðvitað stóðhestefninu Þrym frá Húsafelli (sem hefur verið seldur út).

Folöldin undan Þrym frá Húsafelli, Álfasteinssyni og Móeiðar frá Álfhólum koma vel út, sem og önnur.

 Dögun og ónefnt jarpt hestfolald undan Þrym og GlóblesuGriffla og Myrkvi

 

 

 

 

 

 

 

Mynd1 frá vinstri: Dögun, undan Yddu og Alvari frá Brautarholti, og ónefndur jarpur hestur undan Þrym og Glóblesu, sýna myndasmið mikinn áhuga.

Mynd 2: Fyrstuverðlaunahryssan Griffla frá Geitaskarði með sitt fyrsta afkvæmi, Myrkva – undan Fróða frá Staðartungu.

 

argangur2002

Í góðu tómi