Geitaskarð

Skrapatunga- Hross svo langt sem augað eygir....Framundan hjá okkur er að fara upp á Laxárdal, í félagi við sveitunga og gesti og smala afréttinn og rétta hross í Skrapatungurétt. Það er alltaf mikil stemning og mikið fjör. Á okkar vegum taka um 60 manns þátt í smölun og réttarstörfum um þetta árið. Er þetta ein skemmtilegasta helgi ársins fyrir heimamenn og fátt sem jafnast á að vera vel ríðandi og ríða út Laxárdal með hrossastóð á undan sér í fylgd skemmtilegs fólks. Við hlökkum til. 

 

 

 

 Það er nánast útilokað að lýsa svo vel sé þeirri stemningu sem myndast en meðfylgjandi myndir geta kannski hjálpað eitthvað. 

Skrapatunga - Gangnahestarnir Sólon og Garpur virða fyrir sér höggið milli Haugsskarðs og Sauðadals. „Eigum við að fara hérna niður?“ Í fjarska sést í Vesturárskarð.Skrapatunga - Séð ofan af Kárahlíðarhnjúk vestur Strjúgsskarð, hægt er að greina tvo flokka reiðmanna í skarðinu.Skrapatunga-Hluti af stóðinu hvílt.

 

 

 

 

 

 

 

sel med folald dscf3236Nýkastað folald "frumtamið" Wink