09. júní 2009
Ringó frá Kanastöðum hækkaði sig verulega í kynbótadómi á Hellu í síðustu viku. Daníel Jónsson sýndi hestinn og stóðu þeir félagar sig með miklum ágætum, áttu góða sýningu sem skilaði hestinum í 8,22 í aðaleinkunn.
Ringó er undan 1. verðlauna stóðhestinum Hrym frá Hofi og Millu frá Reykjavík. Ringó á eitt sýnt systkyni að móðurinni til, hæfileikahryssuna Hörpu frá Reykjavík en hún er með 8,42 í aðaleinkunn. Ringó er því spennandi kynbótahestur sem getur hækkað dóm sinn. Einnig mætti hugsa sér klárinn sem fjórgangara eða í töltkeppni.
Auk Geitaskarðsfrændanna eiga Daníel Jónsson, Eyjólfur Sverrisson, Hermann Arason og Valgeir M. Baldursson hlut í hestinum.
Ringó er til sölu og geta áhugasamir haft samband á netfangið siggilevy(hjá)geitaskard.com eða hringt í annaðhvort +354 660 0090 eða +354 660 0088.




.jpg)