Ísafold er bandvön og snotur meri, meðalhross að stærð, með mjúkar hreyfingar og svifmiklar - hún hefur gott geðslag en er ákveðin í skapi. Fótlyfta og höfuðburður er til sóma. Hún ber helst fyrir sig brokki og tölti sem hún á ekki langt að sækja, enda eðal töltarar í ættartrénu. Faðir hennar er albróðir hins fræga 1. verðlauna stóðhests og töltara, Töfra frá Kjartansstöðum, og hinu megin er móðirin (með 8 fyrir tölt og fegurð í reið, og 8,5 fyrir vilja/geðslag) undan Anvara frá Ey, sem hlotið hefur afkvæmaverðlaun. Ísafold er efnileg kynbótahryssa.
Blup: 110
Foreldrarnir, Trúr frá Kjartansstöðum og Gola frá Geitaskarði.
Ættartré:
Faðir: IS2000187336 - Trúr frá Kjartansstöðum
FF: IS1989165520 - Óður frá Brún
FFF: IS1980187340 - Stígur frá Kjartansstöðum
FFM: IS1981265031 - Ósk frá Brún
FM: IS1974286107 - Terna frá Kirkjubæ
FMF: IS1970186105 - Hlynur frá Kirkjubæ
FMM: IS19ZZ286167 - Pálma-Skjóna frá Kirkjubæ
Móðir: IS1997256813 - Gola frá Geitaskarði
MF: IS1990184730 - Andvari frá Ey I
MFF: IS1986186055 - Orri frá Þúfu
MFM: IS1981284726 - Leira frá Ey I
MM: IS1982238010 - Seljadís frá Seljalandi
MMF: IS1977138001 - Gosi frá Tungu
MMM: IS19ZZ238320 - Sneggla frá Seljalandi












.jpg)