Lyfting frá Geitaskarði - IS2006256815 Seld
Lyfting er bandvön og var lónseruð í 3 vikur í vetur auk þess sem hún kynntist hnakk og beisli lauslega. Á hana hefur verið sest nokkrum sinnum, hún er hrekklaus og mjög trúlega alhliða geng. Hryssan er undir meðalhæð, þægileg í allri umgengni, forvitin og með gott geðslag. Hún er undan 1. verðlauna stóðhestinum og töltaranum Þengli frá Kjarri og ótaminni meri sem gefið hefur góða reiðhesta.
Um kynbótadóm Þengils: Bygging: 8.43, Hæfileikar: 8.31, Aðaleink.: 8.36 (9 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk). Lyfting er snotur hryssa með mikið og ljóst fax. Hún fékk slysafang sumarið 2009 og kastaði rauðu, breiðblesóttu og hringeygðu hestfolaldi þann 6. maí 2010. Ekki er vitað hver faðirinn er.
Myndir að neðan eru af forledrum Lyftingar, Þengill til vinstri og Mömmublesa til hægri.


Ættartré:
Faðir: IS1994187005 - Þengill frá Kjarri
FF: IS1989187001 - Stjörnu-Gnýr frá Kjarri
FFF: IS1968135570 - Ófeigur frá Hvanneyri
FFM: IS1976287657 - Stjarna frá Selfossi
FM: IS1980281001 - Þruma frá Selfossi
FMF: IS1974186001 - Hylur frá Kirkjubæ
FMM: IS1976287657 - Stjarna frá Selfossi
Móðir: IS1987256814 - Mömmublesa frá Geitaskarði
MF: IS1978156781 - Goði frá Breiðavaði
MFF: IS1971186102 - Þór frá Kirkjubæ
MFM: IS1956256185 - Glóbrún frá Marðarnúpi
MM: IS19AC256196 - Mósa frá Geitaskarði







.jpg)